Er ekki í lagi heima hjá þér eða...?

Já, ég ákvað að stofna Moggablogg til þess að geta nöldrað yfir fréttum eins og þessari. Veit ekki hvort ég muni blogga alfarið hérna og hætta á bloggar.is... það verður bara að koma í ljós

En allaveganna. Yfir í þessa frétt um að öryggisráð Feministafélagsins hafi kært Visa fyrir að taka þátt í dreifingu kláms með því einu að leyfa fólki að borga fyrir það með kortunum sínum!  Ég stoppaði nú bara strax í byrjuninni á fréttinni þegar ég sá að það væri eitthvað "öryggisráð" í Feministafélaginu. Það á sennilega eftir að gera góða hluti, gætu jafnvel náð að afstýra nýju köldu stríði með þessu áframhaldi!

Mér finnst það gjörsamlega óþolandi þegar svona öfgar koma upp og sérstaklega þegar það er verið að gera einhverja svona vitleysu og reyna að flokka það undir jafnréttisbaráttu eða eitthvað þess háttar. Svo myndi ég nú ekki segja að klám hefði neitt með jafnrétti að gera.... þar eru karlar jafnt sem konur og það er einnig framleitt fyrir bæði karla og konur, samkynhneygða jafnt sem gagnkynhneigða. Auk þess er erfitt að skilgreina hvaða klám sé á beinan hátt ólöglegt og hvað ekki, það er t.d. engan veginn hægt að fullyrða að klám eigi alltaf samleið með vændi og mannsali. Klám er ólöglegt en erótískt myndefni ekki. Það eru afskpaplega erfitt að átta sig á mörkunum

Það eru því ekki einungis eitt  vafaatriði í þessari kæru heldur tvö. Í fyrsta lagi er virkilega tæpt að tengja Visa við ólöglegar athafnir einungis með því að gera fólki kleift að borga fyrir þær og í öðru lagi er erfitt að skilgreina hvort um ólöglegar athafnir sé um að ræða.

 

Þetta öryggisráð segjist byggja á lagagreinum sem segja að sá sem er þátttakandi í glæp sé jafn sekur og sá sem fremur glæpinn. Finnst ansi gróft að segja að Visa sé þátttakandi í þeim glæpum sem hugsanlega eiga sér stað. Hvað með fólk sem hefur keypt vörur sem framleiddar eru af stórfyrirtækjum sem borga einhverjum öðrum aðilum í Kína fyrir framleiðsluna og sá aðili er með fólk í þrælahaldi eða borgar því allt of lág laun fyrir vinnuna. Erum við, kaupendurnir þá sjálfkrafa orðnir þáttakendur í glæpnum?

 

Ég tel mig vera jafnréttissinnaðan mann og ég spyr því, af hverju einbeitir Femínistafélagið sér ekki að því að takast á við alvöru vandamál í þjóðfélaginu því ég dreg það ekkert í efa að það sé ýmislegt tengt jafnréttismálum hér á landi sem er ekki nægilega gott.

 

En nóg af pirringi í bili. Ég held að ég sé búinn að ákveða hvaða lag ég tek á Barkanum. Margt sem kom til greina en ákvað á endanum þar sem þetta er nú síðasti skiptið sem ég tek þátt í Barkanum og svona að  hafa bara gaman að þessu og rokka þetta aðeins upp frá síðustu árum og taka "Feeling good" í útgáfu Muse. Verður spennandi að sjá hvernig það á eftir að ganga Smile

 


mbl.is Femínistafélagið kærir Vísa-klám
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ég er búin að skrifa 100 comment og stroka þau öll út. Þú munt hvort eð er ekki skilja neitt af þeim.

ég skil bara satt best að segja ekki hvernig feministafélag íslands nennir þessu, fólk er svo rosalega ljót og vont og ógeðslegt við þær.

held samt að þér sé að yfirsjást að nafnið öryggisráð er algjört djók hjá þeim. þær eru alltof vel gefnar til að vera að meina neitt nema stórt djók með því... en því miður fyrir þig sástu það ekki... hefðir geta sleppt því að vera pirr og frekar glottað út í annað gæskurinn...

páll gunnars (IP-tala skráð) 11.12.2007 kl. 22:07

2 Smámynd: Stefán Smári

Ég nennti ekki að lesa bloggið nema þetta seinasta, en ég fer einmitt hina leiðina og tek rólegt lag af því að þetta er seinasta árið mitt í Barkanum, Volcano.

Stefán Smári, 11.12.2007 kl. 22:14

3 identicon

hehe... já þú hefðir nú alveg getað sleppt því að vera pirr og glottað út í annað sömuleiðis bara....;)

Og hvaða þetta öryggisráð varðar þá finnst mér frekar vitlaust að vera að djóka eitthvað með nafn á ráði sem þær nota til þess að fara í lögsóknir.

Hafthorarinsson (IP-tala skráð) 11.12.2007 kl. 22:14

4 Smámynd: Hafþór Þórarinsson

...Og Stefán... já, það verður nú einhver að taka Muse fyrst að þú gerir það ekki

Hafþór Þórarinsson, 11.12.2007 kl. 22:18

5 identicon

haaafffi :) gaman að sjá skoðanir þínar hérna. Hef nú aldrei haft mikla trú á feminstum og finnst þær eiginlega alltaf vera að eyða tíma sínum í ekki neitt greyin.

Og samkvæmt fyrsta ræðumanni hérna, er víst verið að djóka með öryggisráðið.... verð að segja að ég er þér svo hjartanlega sammála haffi, freekar tæpt að vera að djóka með nafn á þetta mikilvægu ráði, sem þær nota til að beita sér útávið. Hef ekki nokkra trú á að þetta sé eitthvað bara til gamans gert, þær stíga bara ekki meira í vitið en þetta þessar elskur. :)

Og fyrst við erum nú á annað borð að tala um feminista.. þá eyða þær tíma sínum mestum, eins og áður sagði, í að berjast fyrir einhverju sem skiptir ekki miklu máli hvað varðar jafnrétti. En þegar þær svo snúa sér að "jafnrétti" þá gera þær ekkert nema hamast við að rakka karla niður. Er ekki meiningin að hafa okkur jöfn? Konurnar eiga ekkert að vera ofar en karlarnir í goggunarröðinni. Jafnrétti er jafnrétti.. takk fyrir það.

Björg Eyþórsdóttir (IP-tala skráð) 16.12.2007 kl. 00:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hafthorarinsson

Höfundur

Hafþór Þórarinsson
Hafþór Þórarinsson
Er á 4. ári í ME. Helstu áhugamál eru íþróttir og tónlist. Spila á hljómborð og pínu á gítar og hef gaman af því að syngja. Stefni á að fara í tónlistarlýðháskólann "Den Rytmiske Højskole" eftir að ég lýk stúdentsprófi næsta vor.

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband